Leikbreytir ehf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé þýska fyrirtækisins Passcreator GmbH sem er leiðandi í rafrænum kortalausnum fyrir Apple og Google Wallet. Passcreator var stofnað árið 2012 í Munchen í Þýskalandi þar sem höfuðstöðvar félagsins eru staðsettar. Félagið var stofnað til að útfæra lausnir í kringum Apple Passbook (síðar Apple Wallet) og hefur félagið frá stofnun unnið náið með Apple og Google. Hjá sameinuðu félagi verða stöðugildi rúmlega 20 á 5 starfstöðvum í jafnmörgum löndum. Hjá Passcreator eru í dag um 500 viðskiptavinir í 50 löndum og um 8 milljón notendur víðs vegar um heim nota lausnir Passcreator. Þessi viðskiptavinahópur mun bætast við yfir 100 viðskiptavini Leikbreytis.
Sameinað félag mun markaðsetja vörur- og þjónustu sína undir vörumerkinu Passcreator. Vörumerkið Passcreator mun bjóða upp á tvær megin þjónustuleiðir, Passcreator Basic og Passcreator Enterprise þar sem fjártæknivistkerfi Leikbreytis fyrir gjafa-, viðskiptamanna- og vildarkort verður lykilvara nýrrar vörulínu, ásamt sérlausnum Passcreator fyrir tryggingarfélög og félög sem þurfa hámarksafköst vegna fjölda korta sem oft geta talið í hundruðum þúsunda notenda hjá einstökum viðskiptavinum.
Passcreator GmBH hefur boðið upp á sérhæfða skýjalausn þar sem notendur geta skráð sig sjálfir, samþætt við eigin kerfi og byrjað að gefa út rafræn kort í Apple og Google Wallet, ásamt ýmsum þjónustum eins og félagakortum, starfsmannakortum, stimpilkortum fyrir veitingahús, aðgangskortum fyrir viðburði, tryggingarskírteinum og fleir sérlausnum sem viðskiptavinir geta þjónustað sig sjálfir með í skýjalausn Passcreator. Passcreator uppfyllir ISO 27001:2022 vottun sem félagið starfar eftir. Á sama tíma hefur Leikbreytir þróað fjártæknivistkerfi til að gefa út gjafa-, vildar- og viðskiptamannakort og verið samstarfsaðili Passcreator og nýtt þeirra skýjalausnir til útgáfu korta í Apple og Google wallet.
Helstu viðskiptavinir Passcreator GmBH eru m.a. Stærstu tryggingarfélög Evrópu, Mercedes Benz, BMW og Óskarsverðlaunahátíðin, svo einhver félög séu nefnd.
„Með kaupunum tökum við risaskref inn á alþjóðamarkað fyrir okkar lausnir, í stað þess að byggja upp markaði frá grunni sem bæði er tímafekt og kallar á umtalsvert fjármagn. Í sameiginlegu fyrirtæki verða mikil tækifæri til vaxtar enda bæði fyrirtækin starfandi á gríðarlega stórum og hratt vaxandi markaði þar sem eftirspurn er mikil eftir beinni og hagkvæmari leið fyrir kortalausnir. Mikil samlegð felst í kaupunum sem eykur getu fyrirtækjanna til aukinnar sölu með bættu framboði fjölbreyttari og dýpri þjónustuleiða. Lausnir Leikbreytis verða kynntar núverandi viðskiptavinum Passcreator og markaðsettar til þeirra fjölda aðila sem nýta skýjalausn Passcreator í mánuði hverjum, en kerfi Passcreators býður upp á mikla skölun og hraðari og skilvirkari markaðsetningu.“ Segir Yngvi Tómasson, forstjóri Leikbreytis.
„Við höfum unnið náið með Leikbreytir síðustu ár og séð fjártækni vistkerfi Leikbreytis vaxa og þróast af miklum krafti og því eru gríðarlega spennandi tímar framundan með kaupum Leikbreytis á Passcreator, og í framhaldinu sameinuðu vöruframboði undir merkjum Passcreator. “ segir David Sporer, Stofnandi Passcreator sem mun starfa áfram hjá sameinuðu félagi.
Mörg af stærstu verslunarfyrirtækjum landsins hafa valið fjártækni vistkerfi Leikbreytis til að halda utan um gjafa- , viðskiptamanna- og vildarkort sín en lausnin hentar vel fyrir t.d. verslanir, verslanakeðjur og verslanamiðstöðvar. Lausnin gerir þjónustuaðilum kleift að gefa út gjafa-, vildar-, viðskiptamanna-, beiðna- og starfsmannakort bæði á hefðbundinn hátt á prenti og í Apple og Google Wallet. Með kortunum er hægt að greiða fyrir vörur í verslun þar sem kerfið er samþáttað helstu afgreiðslukerfum og vefverslunarkerfum. Meðal viðskiptavina sem nýta lausnirnar má nefna Kringluna, Byko, Orkuna, Samkaup, Haga, Reykjavíkuborg og Kviku banki.
Í byrjun árs 2025 höfðu yfir 530.000 gjafakort verið gefin út í fjártækni vistkerfi Leikbreytis, að verðmæti 8.5 milljarða króna, og árið 2024 fóru um 250.000 færslur í gegnum kerfið.
https://vb.is/frettir/leikbreytir-i-utras/
https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2025/08/20/leikbreytir_kaupir_leidandi_fyrirtaeki_i_rafraenum_/



